fyrirtaeki


Fyrirtækið

Vistor hf. er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar á lyfjum, heilsuvörum og dýraheilbrigðisvörum á Íslandi.

Vistor er samstarfsaðili fjölmargra alþjóðlegra lyfjafyrirtækja og veitir þeim þjónustu við skráningar, sölu- og markaðsmál, klínískar rannsóknir, auk þess að hafa milligöngu um innflutnings- og dreifingarstarfsemi. Með því að leggja áherslu á skilvirka og hnitmiðaða starfsemi og skapa starfsumhverfi sem laðar að hæfa einstaklinga til starfa gerir Vistor samstarfsaðilum sínum kleift að ná settum markmiðum. Ennfremur er kaupendum og neytendum varanna tryggt auðvelt og áreiðanlegt aðgengi.

Markmið Vistor er að vera ákjósanlegasti samstarfsaðilinn á íslenska lyfjamarkaðinum, í huga viðskiptavina, birgja, starfsmanna og samfélagsins.

Í janúar 2012 eru starfsmenn Vistor um 60 talsins.

Starfsemi Vistor skiptist í eftirfarandi meginsvið:

- Lyfseðilsskyld lyf 
- Lausasölulyf
- Dýraheilbrigði (lyf og vörur) 
- Lyfjaskráningar
- Klínískar rannsóknir 

Markaðshlutdeild Vistor á lyfjamarkaði árið 2011 var 39% og veltan tæpir 8 milljarðar króna.

Starfsfólk Vistor leitast ávallt við að hafa gildi fyrirtækisins að leiðarljósi í störfum sínum. Þau eru:

gildi-areidanleiki gildi-hreinskiptni gildi-framsaekni

Áreiðanleiki

Hreinskiptni

Framsækni

Hafðu samband við Vistor

  • HEIMILISFANG
  • Hörgatúni 2
    210 Garðabær
  • SÍMI/FAX
  • Sími: 535 7000
    Fax: 565 6485
  • VISTOR
  • KT: 630402-3870
    VSK númer: 75030

Pöntun og dreifing

412 7520