Stjórn
Hreggviður Jónsson, stjórnarformaður
Hreggviður útskrifaðist með BA gráðu í viðskiptum frá Macalester College í St. Paul í Minnesota árið 1987 og með MBA gráðu frá Harvard Business School í Boston árið 1993. Hreggviður hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr ýmsum geirum þjóðlífsins. Áður en hann festi kaup á Vistor var hann forstjóri Norðurljósa og þar áður fjármálastjóri Íslenska útvarpsfélagsins. Ennfremur starfaði hann sem ráðgjafi hjá McKinsey & Company í Svíþjóð og sem markaðsstjóri Brimborgar. Að auki hefur Hreggviður setið í stjórn hjá ýmsum fyrirtækjum.
Guðrún Högnadóttir
Guðrún Högnadóttir er framkvæmdastjóri Opna háskólans í HR og starfar sem stundakennari við viðskiptadeild skólans. Hún er heilbrigðisrekstrarhagfræðingur að mennt og lauk BSPH og MHA prófgráðum frá University of North Carolina í Chapel Hill. Guðrún lauk jafnframt Associate Certified Coach prófréttindum frá CCU árið 2004. Guðrún hefur starfað við stjórnunarráðgjöf síðan 1998, einkum á sviði stefnumótunar, gæðastjórnunar og skipulags- og mannauðsmála. Hún var einn eigenda IMG ráðgjafar, áður Deloitte & Touche ráðgjöf (nú Capacent). Hún var fræðslustjóri Ríkisspítala og forstöðumaður gæða- og þróunarskorar Landspítalans á árunum 1991 til 1997. Guðrún hefur jafnframt tekið þátt í starfi innlendra og erlendra fagfélaga, stjórna og nefnda auk kennslu.
Guðbjörg Alfreðsdóttir
Guðbjörg er með meistaragráðu í lyfjafræði frá danska lyfjafræðiháskólanum og lauk AMP námi frá INSEAD árið 2007. Guðbjörg hefur rúmlega 30 ára starfsreynslu af sölu- og markaðsmálum innan lyfjageirans og hefur verið í stjórnunar- og áhrifastöðum innan hans í rúm 20 ár. Í gegnum tíðina hefur Guðbjörg verið fulltrúi lyfjamála í ýmsum nefndum og ráðum og er nú fulltrúi lyfjageirans í Lyfjagreiðslunefnd. Þá skipaði ráðherra Guðbjörgu í nefnd, sem lokið hefur störfum, til að móta lyfjastefnu.
Hafðu samband við Vistor
- HEIMILISFANG
- Hörgatúni 2
210 Garðabær
- Net/Veffang
- vistor@vistor.is
www.vistor.is
- SÍMI/FAX
- Sími: 535 7000
Fax: 565 6485
- VISTOR
- KT: 630402-3870
VSK númer: 75030
Pöntun og dreifing
412 7520
