lyfjaskraningar


Um Encode

Í október 2011 sameinaðist Encode Vistor hf. Markmiðið með samrunanum er að efla enn frekar klínískar lyfjarannsóknir á Íslandi og vera í fararbroddi á því sviði. Starfsemin grundvallast á hæstu siðfræði- og gæðastöðlum, ávallt með velferð sjúklinga í fyrirrúmi. Encode hefur byggt upp gæðakerfi til að tryggja fylgni við alþjóðlegar leiðbeiningar um klínískar rannsóknir (ICH GCP), viðeigandi lög og reglugerðir við framkvæmd rannsóknanna og uppfylla kröfur viðskiptavina um bestu þjónustu á hverjum tíma.

Íslenskar lyfjarannsóknir ehf. – Encode var stofnað árið 1999 sem fyrsta sjálfstæða þjónustufyrirtæki landsins í klínískum lyfjarannsóknum. Frá upphafi hefur starfsemin falist í því að hafa umsjón með klínískum rannsóknum og vísindarannsóknum í samræmi við óskir viðskiptavina, sem talið hafa bæði innlend og alþjóðleg lyfjafyrirtæki, sprotafyrirtæki og stofnanir eða sjálfstæða rannsakendur. Encode hefur átt farsælt samstarf við fjölda lækna og heilbrigðisstarfsfólk, bæði sjálfstætt starfandi sérfræðinga, heilsugæslustöðvar og Landspítalann. Til þessa, hefur Encode komið að framkvæmd yfir 70 rannsókna, bæði lyfjarannsókna í fösum I-IV og rannsókna án inngrips, m.a. á sviði hjarta- og æðasjúkdóma, öndunarfærasjúkdóma, húðsjúkdóma, krabbameina, gigtarsjúkdóma, efnaskiptasjúkdóma o.fl.

Þjónustan felur meðal annars í sér eftirfarandi:

Skipulagningu, undirbúning og frágang við klínískar rannsóknir/vísindarannsóknir og samningagerð.
•   Val á rannsóknarsetrum og rannsakendum.
Umsóknir til Lyfjastofnunar, Vísindasiðanefndar og Persónuverndar, sbr. kröfur regulgerða nr. 443/2004 um klínískar lyfjarannsóknir á mönnum og nr. 286/2008 um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði.
Umsýslu á rannsóknargögnum, þýðingar og aðstoð við gagnagerð fyrir rannsóknarteymi.
Þjálfun rannsóknarteyma.
Umsjón með rannsóknum og vöktun (monitoring) gegnum rannsóknarferlið, þ.m.t. samanburð þátttakendaskýrslna við grunngögn (source data verification) og tilkynningu aukaverkana.
•  Vera tengiliður í samskiptum milli bakhjarls og rannsóknarteymisins.  
•  Innflutning á rannsóknarlyfjum í samvinnu við innflutnings- og dreifingarfyrirtækið Distica, sem hefur ISO 9001 gæðavottun. 

Sé frekari upplýsinga óskað, vinsamlegast hafið samband með því að senda tölvupóst á encode@vistor.is, eða í síma 535 7000, fax 535 7045.

Vistor, Encode klínískar rannsóknir, Hörgatúni 2, 210 Garðabær

Hafðu samband við Vistor

  • HEIMILISFANG
  • Hörgatúni 2
    210 Garðabær
  • SÍMI/FAX
  • Sími: 535 7000
    Fax: 565 6485
  • VISTOR
  • KT: 630402-3870
    VSK númer: 75030

Pöntun og dreifing

412 7520