lyfjaskraningar


Klínískar rannsóknir

 

Starfsemi deildarinnar felst í því að hafa umsjón með klínískum rannsóknum og vísindarannsóknum í samræmi við óskir viðskiptavina.
Þess er gætt í hvívetna að starfsemin fari að íslenskum lögum og reglum ásamt lögum og reglugerðum EES um klínískar rannsóknir sem framkvæmdar eru á mönnum og að unnið sé eftir ICH- GCP leiðbeiningum (International Conference on Harmonisation´s Good Clinical Practice Guideline). Starfsemin grundvallast á eigin verklagsreglum (SOPs) og verklagsreglum viðkomandi viðskiptavinar.
Við höfum 14 ára reynslu af framkvæmd klínískra rannsókna á mismunandi sviðum læknisfræðinnar, til dæmis á hjarta- og æðasjúkdómum, geðsjúkdómum, sykursýki, meltingarfærasjúkdómum, nýrnasjúkdómum, krabbameinum og öndunarfærasjúkdómum,

Umsjón með rannsóknum og vöktun

Þjónusta okkar felur meðal annars í sér eftirfarandi:

  • Skipulagningu, undirbúning og frágang við klínískar rannsóknir/vísindarannsóknir og samningagerð.
  • Val á rannsóknarstöðvum og rannsakendum.
  • Umsóknir til íslenskra heilbrigðisyfirvalda, Lyfjastofnunar, Vísindasiðanefndar og Persónuverndar.
  • Umsýslu á rannsóknargögnum og þýðingar.
  • Að útbúa gögn til stuðnings fyrir rannsóknarteymi.
  • Fundi við upphaf rannsókna og þjálfun rannsóknarteyma.
  • Umsjón með rannsóknum og vöktun (monitoring) í byrjun rannsóknar, meðan á rannsókn stendur og við lok rannsóknar. Skipulagningu funda, staðfestingu á frumgögnum (source data verification) og tilkynningu meintilvika og aukaverkana.
  • Fjármál.
  • Innflutning á rannsóknarlyfjum í samvinnu við innflutnings- og dreifingarfyrirtækið Distica, sem hefur ISO 9001 gæðavottun.
  • Eftir lok rannsókna getum við boðið upp á geymslu á rannsóknargögnum.

Vinsamlegast hafið samband við stjórnanda klínískra rannsókna, Gunni Petru Þórsdóttur (gunnur@vistor.is) ef frekari upplýsinga er óskað.

Hafðu samband við Vistor

  • HEIMILISFANG
  • Hörgatúni 2
    210 Garðabær
  • SÍMI/FAX
  • Sími: 535 7000
    Fax: 565 6485
  • VISTOR
  • KT: 630402-3870
    VSK númer: 75030

Pöntun og dreifing

412 7520