Lyfjaumboðsdeildirnar eru tvenns konar. Annars vegar kjósa framleiðendur að sérdeild starfi sjálfstætt að markaðsmálum þeirra, með aðstoð stoðdeilda Veritas Capital, móðurfélags Vistor. Þær deildir eru Janssen, MSD, Novartis og Sanofi.
Í lyfjaumboðsdeildum 1, 2 og 3 eru hins vegar fleiri framleiðendur í blönduðum markaðsdeildum. Vistor kappkostar að vera sveigjanlegt í óskum umbjóðenda sinna og breytir ört til í samvinnu við þá.
Megináhersla í starfsemi lyfjaumboðsdeildanna er sala, markaðssetning og kynning á lyfjum og lyfjanotkun við sjúkdómum á öllum lækningasviðum. Lögð er mikil áhersla á samvinnu við lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk og að veita viðskiptavinum faglega ráðgjöf og upplýsingar.
Lyfjaumboðsdeildirnar sjá einnig um útgáfu fræðsluefnis fyrir lækna og almenning, fræðslufundi fyrir lækna og þátttöku í ráðstefnum, svo eitthvað sé nefnt.
Nokkur lyfjafyrirtæki standa fyrir þátttöku íslenskra lækna í klínískum lyfjarannsóknum og njóta þjónustu Vistor við eftirlit og framkvæmd þeirra.