
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Upphaf Hill’s má rekja aftur til ársins 1943 þegar bandaríski dýralæknirinn Dr. Mark Morris útbjó sérfóður handa leiðsöguhundinum Buddy sem þjáðist af nýrnasjúkdómi. Þetta gerði Buddy kleyft að starfa áfram í mörg ár þar sem tvíeykið, Buddy og hans blindi eigandi ferðuðust mikið til að kynna mikilvægi leiðsöguhunda. Dr Mark Morris hafði sérstakan áhuga á næringafræðilegri stýringu sjúkdóma í gæludýrum fremur en með uppskurðum og löngum lyfjameðferðum. Árið 1948 hófst formlega samstarf Dr. Mark Morris og Burton Hill’s um framleiðslu á sérfæðis handa gæludýrum sem var upphafið að Hill’s Pet Nutrition; fyrirtæki sem svo sannarlega hefur í tímanna rás verið trú sannfæringu sinna frumkvöðla.
Frá þessum tíma hefur Hill’s Pet Nutrition fyrirtækið verið í fararbroddi í rannsóknum á gæludýrafóðri fyrir hunda og ketti, fyrst með áherslu á sérhönnuð sjúkrafóður (Prescription Diet), síðar heilfóður (Science Plan og Natures Best) auk þess sem sértækar fóðurtegundir (Oral Care, Indoor Cat, Sensitive Skin o.s.frv.) hafa komið fram til að mæta óskum gæludýraeigenda.
Það efast enginn sem nota Hill’s gæludýrafóður um mikilvægi hágæða fóðurs sem lykilforsendu að heilsusamlegu lífi. Í markmiðssetningu Hill’s segir einmitt að unnið skuli að því að bæta og lengja sem kostur er það sérstaka samband sem ríkir á milli gæludýra og eigenda. Gríðarleg rannsóknavinna dýralækna, fóðurfræðinga og annars starfsfólks Hill’s tryggir okkur besta fáanlega gæludýrafóðrið á hverjum tíma. Endurbættar uppskriftir sem taka mið af nýjustu rannsóknaniðurstöðum auk metnaðarfullrar þróunarvinnu bera metnaði Hill’s vitni í því að uppfylla sín markmið.
Samstarf við dýralækna um allan heim hvort heldur sem samstarfsaðila að rannsóknum eða sem söluaðilum Hill’s tryggir gæludýraeigendum faglega ráðgjöf sem og aðgengi þeirra að því Hill’s fóðri sem hentar þeirra gæludýri hvort sem um er að ræða heilfóður eða sjúkrafóður.
Innflutningur og dreifing Hill´s gæludýrafóðursins hérlendis hefur verið hjá Vistor hf um áratugaskeið. Vistor hf er leiðandi fyrirtæki í þjónustu við framleiðendur og kaupendur lyfja, lækninga og rannsóknartækja. Fyrirtækið lætur sig heilbrigði varða, ekki einungis manna heldur einnig dýra og því var það okkur bæði ljúft og skylt með upphaf Hill’s í huga að taka þátt í því að styrkja þjálfun leiðsöguhunda þegar eftir því var leitað. Það dylst engum sem að slíku verkefni koma að mikil verðmæti liggja í fullþjálfuðum leiðsöguhundi og því full ástæða að hyggja að heilbrigði hundsins. Fyrsti leiðsöguhundurinn á Íslandi, Erró var afhentur notanda sínum Friðgeiri Jóhannessyni árið 1999 og hafa Hill’s og Vistor hf kostað dýralæknaþjónustu og fóðrun hundsins frá þeim tíma. Sá árangur sem náðst hefur í samstarfi Friðgeirs og Erró er okkur í Vistor frekari hvatning til áframhaldandi þátttöku í þessu verkefni.